Já! Afpöntunargjöld ákvarðast af gististaðnum og þau eru tilgreind í afpöntunarskilmálunum. Þú greiðir gististaðnum öll aukagjöld.
Þarf ég að greiða gjald ef ég afpanta bókunina?
Ef bókunin þín er með ókeypis afpöntun þarft þú ekki að greiða afpöntunargjald. Ef afpöntun á bókuninni er ekki lengur ókeypis eða bókunin er óendurgreiðanleg gæti verið að þú þurfir að greiða afpöntunargjald. Afpöntunargjöld ákvarðast af gististaðnum. Þú greiðir gististaðnum öll aukagjöld.
Get ég afpantað eða breytt dagsetningum á óendurgreiðanlegri bókun?
Þú getur ekki breytt dagsetningum á óendurgreiðanlegri bókun. Ef þú ákveður að afpanta bókunina gæti gististaðurinn krafist greiðslu. Afpöntunargjöld ákvarðast af gististaðnum og þú greiðir gististaðnum öll aukagjöld.
Hvar finn ég afpöntunarskilmála gististaðarins?
Þú finnur þá í bókunarstaðfestingunni.
Hvernig veit ég hvort bókunin hefur verið afpöntuð?
Eftir að þú afpantar bókun hjá okkur færð þú tölvupóst sem staðfestir afpöntunina. Kíktu í innhólfið þitt ásamt ruslhólfum. Ef þú færð ekki tölvupóstinn innan sólarhrings skaltu hafa samband við gististaðinn til að staðfesta að afpöntunin hafi skilað sér.
Greiðsla
Hver tekur greiðslu af kreditkortinu mínu og hvenær?
Það getur verið að gististaðurinn taki fyrirframgreiðslu en það veltur á skilmálum gististaðarins. Þetta er gert til að sannreyna kreditkortið með því að halda ákveðinni upphæð þar til eftir útritun. Ef þú ert með spurningar í sambandi við greiðslur skaltu hafa samband við gististaðinn.
Hvað er fyrirframgreiðsla?
Sumir gististaðir gera kröfu um fyrirframgreiðslu. Fyrirframgreiðsla er upphæð sem gististaðurinn tekur fyrir dvöl. Dagsetning greiðslu og upphæð greiðslu veltur á skilmálum gististaðarins.
Hvaða gjöld eru innifalin og ekki innifalin í bókuninni?
Booking.com tekur ekki bókunargjald. Öll aukagjöld eða skattar sem þú sérð ákvarðast af gististaðnum og skattskyldu á svæðinu.
Get ég greitt fyrir dvölina fyrir fram?
Mögulega, en það fer eftir gististaðnum.
Hvenær þarf ég að greiða?
Það fer eftir gististaðnum og eftir greiðsluskilmálunum þínum. Það er best að spyrja gististaðinn beint.
Get ég greitt fyrir dvölina með öðru kreditkorti en því sem ég notaði til að bóka?
Mjög líklega er það hægt, já. Gististaðir taka vanalega við greiðslum með öðru kreditkorti eða reiðufé. Hafðu samband við gististaðinn til að fá staðfestingu á því að greiðsla með öðru kreditkorti sé í boði.
Þarf gististaðurinn innborgun eða fyrirframgreiðslu?
Það fer eftir greiðsluskilmála bókunarinnar.
Hvers vegna verð ég að gefa upp kreditkortaupplýsingar?
Gististaðir biðja um þessar upplýsingar til að staðfesta bókunina. Heimildarbeiðni gæti verið tekin til að tryggja að kreditkortið sé gilt og hafi næga heimild, eða í sumum tilfellum eru upplýsingarnar notaðar til að greiða fyrir gistinguna þegar þú bókar.
Heimildarbeiðni er þegar upphæð er tekin tímabundið frá til að tryggja að kortið sé gilt og hafi næga heimild. Upphæðin sem tekin er frá er skilað á reikninginn þinn eftir ákveðinn tíma, en tíminn veltur á gististaðnum og kortaþjónustunni þinni.
Gististaðurinn tók greiðslu af mér; hvað ætti ég að gera?
Þessi greiðsla gæti, eftir því hver greiðsluskilmáli bókunarinnar er, verið annað hvort af eftirtöldu:
Heimildarbeiðni, sem er þegar upphæð er tekin tímabundið frá til að tryggja að kortið sé gilt og hafi næga heimild. Upphæðin sem tekin er frá er skilað á reikninginn þinn eftir ákveðinn tíma, en tíminn veltur á gististaðnum og kortaþjónustunni þinni.
Innborgun eða fyrirframgreiðsla, sem sumir gististaðir þurfa fyrir bókun. Þetta er tekið fram í staðfestingarpóstinum þínum. Ef ókeypis afpöntun er í boði, færðu þessa upphæð endurgreidda ef þú afpantar bókunina.
Eru skattar innifaldir í verðinu?
Það fer eftir gististaðnum, herberginu sem þú bókaðir og sköttum á svæðinu. Þú sérð alla aukaskatta í upplýsingum um verð bókunarinnar.
Lýsing
Get ég gert breytingar á bókuninni? T.d. breytt dagsetningum
Já! Þú getur breytt bókuninni í gegnum staðfestingarpóstinn eða á Booking.com. Þú getur gert eftirfarandi á meðan skilmálar gististaðarins leyfa:
Breytt innritunar/útritunartímum
Breytt dagsetningu
Afpantað bókun
Breytt kreditkortaupplýsingum
Breytt upplýsingum um gest
Valið rúmtegund
Breytt herbergisgerð
Bætt við herbergi
Bætt við máltíð
Sent beiðni
Haft samband við gististaðinn
Hvernig fæ ég nánari upplýsingar um aðstöðu herbergisins eða gististaðarins?
Þú finnur upplýsingar um aðstöðu herbergisins og gististaðarins í bókunarstaðfestingunni.
Ég kem utan innritunartímans. Get ég samt innritað mig?
Það fer eftir gististaðnum, sem gerir sitt besta til að verða við óskum þínum, en getur ekki tryggt beiðni þína. Þú getur gert annað hvort af eftirtöldu:
Ég finn ekki staðfestingartölvupóstinn. Hvað ætti ég að gera?
Kíktu í innhólfið, ruslpósthólfið og í ruslhólfið í tölvupóstinum. Ef þú finnur staðfestinguna ekki þar skaltu fara á síðuna booking.com/help og við sendum þér hana aftur.
Hvernig get ég fengið reikning?
Aðeins gististaðurinn getur gefið út reikning fyrir dvöl sem lokið er. Til að fá hann fljótt skaltu leggja fram beiðni þína á gististaðnum áður en þú útritar þig eða hafa samband við þau beint.
Greiði ég fullt verð fyrir barn/börn?
Aukakostnaður vegna barna, ef einhver, er ekki innifalinn í bókunarverðinu. Vinsamlega hafðu samband beint við gististaðinn til að athuga hvort eða hvenær þú greiðir fyrir barn/börn.
Er hægt að fá auka- eða barnarúm?
Það fer eftir skilmála gististaðarins. Aukakostnaður vegna barna, þar á meðal fyrir aukarúm eða -barnarúm er ekki innifalinn í bókunarverðinu. Vinsamlega hafðu samband beint við gististaðinn fyrir nánari upplýsingar.
Hver er munurinn á hjónaherbergi og tveggja manna herbergi?
Í hjónaherbergi er eitt tvíbreitt rúm og í tveggja manna herbergi eru tvö einbreið rúm. Ef herbergi heitir hjónaherbergi/tveggja manna herbergi er hægt að biðja um hvort tveggja. Gististaðurinn gerir sitt besta til að mæta þínum þörfum.
Samskipti
Af hverju endar netfang gististaðarins á @property.booking.com?
Fyrir hverja bókun veitir, Booking.com sérstakt falið netfang fyrir þig og gististaðinn. Öll skilaboð sem send eru á þetta netfang verða áframsend á gististaðinn, þar með talið hlekkir, myndir og viðhengi (að 15 MB).
Til öryggis er Booking.com með sjálfvirkt kerfi sem kannar hvort skaðlegt innihald sé að finna í samskiptum. Það telur með ruslpósta og takmörkun ákveðinna tegunda skjala, eins og .zip, .rar og .exe.
Vinsamleg athugaðu að tölvupóstssamskiptin frá gististaðnum eru send í gegnum Booking.com fyrir hönd þeirra. Booking.com getur ekki verið haldið til ábyrgðar fyrir innihaldi samskiptanna ef þau eru óviðeigandi, grunsamleg eða ef þau innihalda ruslpóst. Við biðjum þig því um að tilkynna þessar upplýsingar með því að smella á hlekkinn sem er staðsettur neðst í hægra horni póstsins.
Þessi samskipti verða vistuð af Booking.com. Booking.com getur nálgast samskipti gegn beiðni frá annað hvort þér eða gististaðnum, og ef nauðsyn krefur, af öryggis- eða lagalegum ástæðum, eins og til að ljóstra upp um og koma í veg fyrir sviksamlega starfsemi.
Booking.com gæti skoðað og greint samskipti til að bæta þjónustuna. Ef þú vilt ekki að Booking.com fylgist með eða visti samskipti þín á Booking.com, skaltu ekki nota samskiptaeiginleikann sem Booking.com býður upp á, þar með talin samskipti í gegnum falin netföng.
Hvað er Booking-aðstoð?
Booking-aðstoðin er sýndaraðstoð sem gerir þér kleift að gera breytingar á bókununum þínum og sýnir þér gagnlegar upplýsingar um dvölina.
Hvernig getur Booking-aðstoðin hjálpað mér?
Þú getur beðið Booking-aðstoðina um að senda beiðni um bílastæði, aukarúm, öðruvísi rúm, breytingar á innritunar- og útritunartíma ásamt fleiru. Booking-aðstoðin getur hjálpað til við að svara spurningum sem þú hefur um dvöl þína.
Hvar finn ég Booking-aðstoðina?
Þegar þú átt framtíðarbókun með okkur getur þú fundið Booking-aðstoðina í símanum þínum, í Booking.com-appinu, á vefsíðu Booking.com fyrir tölvur og fyrir snjalltæki eða á Facebook Messenger þegar þú samþykkir að fá bókunarstaðfestinguna þína senda þangað.
Kostar Booking-aðstoðin eitthvað?
Booking-aðstoðin er alveg ókeypis í notkun og það eina sem þú þarft er nettenging. Ef þú notar farsímanetið til að tengjast við internetið gæti það leitt til aukakostnaðar en það fer eftir símafyrirtækinu þínu.
Hvar fær Booking-aðstoðin upplýsingar?
Svörin sem þú færð í gegnum
Booking-aðstoðina eru annað hvort send frá þjónustuveri Booking.com eða fyrir hönd gististaðarins sem þú gerðir viðkomandi bókun hjá.
Get ég notað Booking-aðstoðina á mínu tungumáli?
Booking-aðstoðin er fáanleg á ensku, frönsku, hollensku, ítölsku, japönsku, kínversku (einfaldaðri og hefðbundinni), portúgölsku (evrópskri og brasilískri), rússnesku, spænsku og þýsku.
Tegundir herbergja
Er hægt að fá auka- eða barnarúm?
Upplýsingar varðandi aukarúm og barnarúm er að finna undir „Húsreglur“ á síðu gististaðarins þegar þú bókar.
Aukakostnaður fyrir börn, ef einhver, er ekki innifalinn í verði pöntunar.
Þegar þú bókar getur þú lagt fram ósk um auka- eða barnarúm í reitnum „Sérstakar óskir“.
Ef þú hefur nú þegar bókað getur þú alltaf óskað eftir auka- eða barnarúmi í gegnum hlekkinn sem má finna í staðfestingartölvupósti bókunarinnar.
Hver er munurinn á hjónaherbergi og tveggja manna herbergi?
Hjónaherbergi er með einu hjónarúmi og tveggja manna herbergi er með tveimur einstaklingsrúmum. Ef herbergi heitir Hjóna/tveggja manna herbergi, er hægt að útfæra það fyrir bæði hjón og tvo einstaklinga. Þú getur tekið þitt val sérstaklega fram í reit merktum „Séróskir“ í bókunarferlinu
Hvað þýðir „óendurgreiðanlegt“ og „ókeypis afpöntun“?
Hvert herbergi og hver gististaður er með mismunandi skilmála sem gististaðurinn setur.
„Óendurgreiðanlegt“ þýðir að gjald mun eiga við ef þú ákveður að hætta við eða breyta bókuninni. Minnst er á þetta gjald í skilyrðunum sem fram koma í bókunarferlinu og í bókunarstaðfestingunni.
„Ókeypis afpöntun“ þýðir að þú getur breytt bókun eða afpantað hana án kostnaðar, ef það er gert innan þess tímabils sem gististaðurinn tilgreinir (t.d. „hægt að afpanta innan X daga“ eða „hægt að afpanta fyrir dd/mm/ár kk:mm“). Þetta kemur fram í skilmálunum í bókunarferlinu og í bókunarstaðfestingunni.
Get ég beðið um aukarúm í herbergið mitt og fylgir því aukakostnaður?
Upplýsingar varðandi aukarúm er að finna undir „Húsreglur“ á síðu gististaðarins þegar þú bókar.
Viðbættur kostnaður, ef einhver, er ekki innifalinn í verði.
Þegar þú bókar getur þú óskað eftir aukarúmi í reitnum „Sérstakar óskir“.
Ef þú hefur nú þegar bókað getur þú alltaf óskað eftir auka- eða barnarúmi í gegnum hlekkinn sem má finna í staðfestingartölvupósti bókunarinnar.
Við ráðleggjum þér að hafa samband við gististaðinn áður en þangað er komið til þess að tryggja að aukarúm sé fáanlegt. Þú finnur upplýsingar um hvernig hægt er að hafa samband við gististaðinn í staðfestingartölvupóstinum og þegar þú skoðar bókanirnar þínar á svæðinu þínu.
Verðlagning
Hvað er innifalið í verðinu?
Öll aðstaða á herbergjum sem tilgreind er í upplýsingum um tegund herbergis eða gistirými er innifalin í herbergisverði. Einnig er hægt að sjá hvort morgunverður og fleira, eins og skattar eða þjónustugjöld, sé innifalið þegar bornir eru saman mismunandi valkostir til að bóka. Eftir að þú bókar er þessar upplýsingar einnig að finna í staðfestingartölvupóstinum og þú getur séð þær þegar þú skoðar bókanirnar þínar á svæðinu þínu.
Eru verðin á Booking.com á mann eða á herbergi?
Verðið sem við sýnum er fyrir herbergi allan dvalartímann, nema annað sé tekið fram í tegund og lýsingu herbergis.
Eru skattar innifaldir í herbergjaverði?
Þetta fer eftir gististaðnum og tegund gistirýmis en það er auðvelt að sjá hvað er innifalið þegar þú berð saman mismunandi valkosti sem hægt er að bóka. Skattaskilyrði eru breytileg á milli landa, því er alltaf gott að skoða þau. Eftir að þú bókar er einnig hægt að finna þessar upplýsingar í staðfestingartölvupóstinum þínum og þú getur séð þær þegar þú skoðar bókanirnar þínar á svæðinu þínu.
Er morgunverður innifalinn í verði?
Hvert bókanlegt herbergi eða gistirými er með sína eigin morgunverðarskilmála. Ef morgunverður er innifalinn er hann eitt atriðanna sem talin eru upp á síðu gististaðarins þegar þú berð saman mismunandi valkosti til að bóka. Ef morgunverður er ekki innifalinn getur þú séð hvort gististaðurinn bjóði upp á hann með því að athuga aðstöðuna sem er í boði. Eftir að þú bókar er þessar upplýsingar líka að finna í staðfestingartölvupóstinum og þú getur séð þær þegar þú skoðar bókanirnar þínar á svæðinu þínu.
Borga ég pöntunargjald til Booking.com?
Nei, við innheimtum engin gjöld.
Hvað þýðir yfirstrikaða verðið við hliðina á herbergistegund?
Yfirstrikuð verð sem birtast fyrir herbergi miðast við þriðja hæsta núverandi verð á hjá birgja vörunnar eða þjónustunnar sem um ræðir, með sömu bókunarskilyrði á 30 daga tímabili í kringum innritunardaginn þinn (15 daga fyrir og 15 daga eftir innritunardag; séu færri en 15 dagar frá deginum í dag til innritunardags munum við fjölga dögum eftir innritunardag til að ná 30 daga tímabili í heildina). Til að fullvissa okkur um að samanburðurinn sé sanngjarn notum við alltaf sömu bókunarskilyrði (t.d. máltíðir, afpöntunarskilmála og herbergistegund). Það þýðir að þú færð sama herbergi á lægra verði borið saman við aðra innritunardaga á sama tíma árs.
Býður Booking.com upp á einhver sértilboð, eða afslætti með flugfélögum eða hótel meðlimakortum?
Booking.com veitir bestu mögulegu verð fyrir dagsetningar dvarlar þinnar. Það er ekki mögulegt að lækka verðin enn frekar.
Borga ég fullt verð fyrir barnið mitt?
Upplýsingar varðandi auka- og barnarúm er að finna undir “Húsreglur” á síðu gististaðarins þegar þú bókar.
Viðbættur kostnaður fyrir börn, ef einhver, er ekki innifalinn í pöntunarverði.
Þegar þú bókar getur þú lagt fram ósk um auka- eða barnarúm fyrir barn í reitnum „Sérstakar óskir“.
Ef þú hefur nú þegar bókað getur þú alltaf óskað eftir auka- eða barnarúmi í gegnum hlekkinn sem má finna í staðfestingartölvupósti bókunarinnar.
Við ráðleggjum þér að hringja á gististaðinn áður en þangað er komið til þess að tryggja að aukarúm eða barnarúm sé fáanlegt. Þú finnur upplýsingar um hvernig hægt er að hafa samband við gististaðinn í staðfestingartölvupóstinum og þegar þú skoðar bókanirnar þínar á svæðinu þínu.
Get ég notað afsláttarmiða (t.d. sem gefnir eru út af tímaritum, búðum o.s.fr.v.)?
Þú getur ekki notað gjafabréf þegar þú pantar á síðunni okkar. Þú verður að fara eftir þeim leiðbeiningum sem er lýst af þeim aðila sem gaf út gjafabréfið.
Kreditkort
Get ég pantað án þess að hafa kreditkort?
Flestir gististaðir fara fram á gilt kort til þess að tryggja pöntunina. Við bjóðum hinsvegar upp á ýmsa gististaði sem munu ábyrgjast bókunina án korts. Þú getur einnig bókað með því að nota kort einhvers annars, að því gefnu að korthafi gefi leyfi fyrir slíku. Í slíkum tilfellum þarf að staðfesta nafn korthafa og að þú hafir leyfi fyrir því að nota kortið í reitinn sem merktur er „sérstakar óskir“ í bókunarferlinu.
Af hverju hefur greiðsla verið tekin af mér?
Birt gjaldfærsla gæti verið ein af eftirfarandi:
Fyrirframheimild: Heimildarbeiðni er sótt til að athuga gildistíma korts og gæti lokað fyrir ákveðna upphæð sem svipar til heildarupphæðar bókunar á kreditkorti. Upphæðin verður bakfærð eftir ákveðinn tíma. Lengd tímans veltur á gististaðnum og þeirri kreditkortaþjónustu sem þú notar.
Trygging eða fyrirframgreiðsla: Stundum krefja gististaðir viðskiptavini um tryggingu eða fyrirframgreiðslu við gerð bókunarinnar. Þessir skilmálar eru teknir fram við gerð bókunar og einnig er hægt að sjá þá í staðfestingu bókunar. Ef þú átt rétt á ókeypis afpöntun verður þessi upphæð endurgreidd ef þú velur að afpanta bókunina.
Þjónustufulltrúar okkar eru alltaf til staðar ef þú þarft hjálp við einhver mál sem tengjast greiðslum. Þú getur haft samband við okkur í gegnum síðuna booking.com/help.
Get ég notað debetkort til að ganga frá pöntuninni minni?
Almennt taka hótel ekki á móti debetkortum til þess að staðfesta pöntun. Hinsvegar eru einhverjar undanþágur. Hægt er að sjá hvort það sé mögulegt í pöntunarferlinu.
Hvað er heimildarbeiðni?
Þegar þú pantar þá getur það komið fyrir að hótelið hafi samband við kreditkorta- eða debetkortafyrirtækið þitt til þess að ganga úr skugga um að kortið sem þú notaðir sé gilt og að það hafi ekki verið tilkynnt tapað eða stolið. Á sama tíma getur verið að það sé einnig athugað að það sé nægilega há heimild á kortinu til þess að dekka færsluna. Þetta nefnist heimildarbeiðni fyrir heildarupphæð pöntunarinnar. Hótelið mun hins vegar ekki gjaldfæra kortið á þessum tímapunkti. Sá tími sem hótelið gjaldfærir kortið fer eftir skilmálum og skilyrðum bókunarinnar.
Hver er munurinn á heimildarbeiðni og raunverulegri færslu á kortinu mínu?
Heimildarbeiðnir eru algengar og er oft ruglað saman við raunverulegar færslur. Á meðan vörukaup í verslunum eru samstundis gjaldfærð þá er upphæðin tímabundið tekin frá þegar um heimildarbeiðni er að ræða. Lengd frátektarinnar er breytileg en kreditkortafyrirtækið þitt getur gefið upplýsingar um hvernig það annast slíkt.
Hvernig veit ég hvort sótt hafi verið um heimildarbeiðni á kreditkortið mitt?
Aðgengileg heimild lækkar tímabundið að því sem nemur heildarverði pöntunarinnar. Þú gætir einnig séð "færsla í bið" á kreditkortareikningnum þínum. Ef þú ert ekki viss um hvort að sótt hafi verið um heimildarbeiðni á kortið þítt þá geta bæði hótelið og kreditkortafyrirtækið staðfest það.
Hversu lengi mun heimildarbeiðnin hafa áhrif á upphæð kortaheimildarinnar?
Kreditkortafyrirtækið þitt getur útskýrt þetta nánar ásamt skilmálum, skilyrðum og verklagi heimildabeiðna. Þessar forsendur geta verið breytilegar svo betra er að hafa samband við kreditkortafyrirtækin til þess að fá nánari upplýsingar.
Mun frátekna upphæðin alltaf vera sú sama og heildarupphæð pöntunarinnar?
Í flestum tilfellum mun heimildarbeiðnin sem hótelið sækir um jafngilda heildarverði pöntunarinnar. Það kemur einstaka sinnum fyrir að upphæðin sé örlítið hærri en sú upphæð sem þú sást hjá Booking.com. Ef það kemur fyrir þá getur hótelið útskýrt af hverju.
Á þetta við allar bókanir sem gerðar eru í gegnum Booking.com?
Hótel áskilja sér rétti til þess að sækja um heimildarbeiðni á kortið þitt en það þýðir samt ekki að það muni vera gert með allar bókanir. Ekki hafa áhyggjur, ef sótt hefur verið um heimildarbeiðni á kortið þitt þá er bæði hótelið og kreditkortafyrirtækið til taks ef þú þarft á aðstoð að halda. Það getur einnig verið að þau geti hjálpað til við að fjarlægja þessa fráteknu upphæð fyrr en ætlað var.
Get ég pantað fyrir mig með því að nota kreditkort einhvers annars?
Já, þú getur það, en aðeins ef þú hefur leyfi frá korthafa. Vinsamlegast taktu fram að þú sért að nota kort sem einhver annar á og að korthafi hafi gefið þér leyfi til þess, í reitnum „Sérstakar óskir“ þegar þú bókar. Gististaðurinn gæti krafist heimildar korthafa. Vinsamlegast athugaðu að í þeim tilfellum þar sem gestur mætir ekki eða við síðbúna afpöntun bókunar, gæti kortið sem gefið var upp við bókun verið skuldfært fyrir þeim gjöldum sem gististaðurinn innheimtir.
Af hverju þarf ég að gefa upp kortaupplýsingarnar mínar?
Í flestum tilfellum þarf Booking.com kreditkortaupplýsingar til að staðfesta bókunina þína við gististaðinn. Það er möguleiki á því að tekin verði heimildarbeiðni af kreditkortinu til þess að ganga úr skugga um að það sé gilt og næg úttektarheimild sé til staðar. Eftir athugunina mun heildarupphæðin vera til ráðstöfunar á ný. Í einstaka tilfellum verða kreditkortaupplýsingarnar þínar notaðar til að gjaldfæra bókunina samstundis. Greiðslukortið þitt verður einungis gjaldfært hafir þú pantað fyrirframgreiðanlegt gistirými eða ef afpöntunarskilmálunum hefur ekki verið fylgt.
Hvaða kreditkort get ég notað til þess að klára bókunina mína?
Þegar þú pantar í gegnum Booking.com þá taka öll hótel á móti:
MasterCard
Visa
Sum hótel samþykkja einnig önnur kreditkort fyrir pantanir, eins og t.d. American Express. Þú getur séð hvaða kreditkort hótelið samþykkir í hótelreglunum fyrir neðan hótellýsinguna og einnig í bókunarferlinu.
Eru kreditkortaupplýsingarnar mínar öruggar?
Já, alltaf. Booking.com notar örugga tengingu og persónu- og kreditkortaupplýsingarnar þínar eru alltaf dulkóðaðar.
Persónu- og kreditkortaupplýsingar þínar eru alltaf dulkóðaðar.
Netþjónninn okkar notar „Secure Socket Layer“ (SSL) tækni, sem er iðnaðarstaðallinn á netinu.
SSL skírteinið okkar er gefið út af Thawte.
Kreditkortið sem ég notaði við bókun er ekki lengur gilt, hvað á ég að gera?
Vinsamlegast uppfærðu greiðsluupplýsingar þínar á Booking.com. Ef fram kemur í bókunarstaðfestingunni þinni að gististaðurinn sjái um greiðsluna getur þú einnig haft beint samband við gististaðinn. Tengiliðsupplýsingarnar er að finna í tölvupóstinum með bókunarstaðfestingunni eða þegar þú skráir þig inn á Booking.com. Öryggisins vegna skaltu aldrei gefa upp kreditkortaupplýsingarnar þínar með tölvupósti.
Skilmálar á gististað
Ég mun koma fyrr/seinna en tilgreindur innritunartími segir til um. Get ég samt innritað mig?
Hægt er að biðja um snemmbúna-/síðbúna innritun á nokkra vegu:
Þú getur tekið fram áætlaðan komutíma við gerð bókunarinnar.
Þú getur haft umsjón með bókuninni á netinu til að biðja um innritun utan áætlaðs innritunartímabils.
Þú getur haft samband við gististaðinn með því að nota þær tengiliðsupplýsingar sem gefnar eru upp í staðfestingu bókunarinnar.
Vinsamlega athugaðu að gististaðurinn getur ekki alltaf tekið á móti slíkum beiðnum. Starfsfólk þess mun með glöðu geði leyfa gestum að fá herbergi fyrr ef framboð leyfir en það gæti verið að enginn muni taka á móti gestum ef áætlaður komutími í íbúð er seint um kvöld á afviknum stöðum. Í þessum tilvikum er best að hafa samband beint við gististaðinn til að koma í veg fyrir vonbrigði.
Hverjir eru innritunar- og útritunartímar gististaðar?
Innritunar- og útritunartímar eru breytilegir eftir gististöðum. Þú finnur þá í hlutanum „Húsreglur“ á síðu gististaðarins þegar þú bókar. Ef þú hefur þegar bókað sérðu innritunar- og útritunartímana í staðfestingartölvupóstinum þínum og þegar þú skráir þig inn á svæðið þitt.
Hvernig fæ ég meiri upplýsingar um aðstöðu sem er í boði?
Þú getur séð hvaða aðstaða fylgir með bókun þegar þú berð saman mismunandi valkosti á hverjum gististað Til þess að sjá hvaða aðstaða er í boði á gististaðnum sjálfum skaltu skoða „Aðstaða“ efst á síðu gististaðarins.
Ég vil útritun eftir tilgreindan útritunartíma. Hvað á ég að gera?
Þú getur spurt um möguleika á síðbúinni útritun á gististaðnum þegar þú mætir þangað. Athugaðu þó að það er háð framboði á dvalardagsetningum þínum.
Ég vil reykherbergi en ég get aðeins valið reyklaust herbergi. Hvernig get ég beðið um reykherbergi?
Ef það eru engin reykingarherbergi skráð, þá þýðir það að hótelið leyfir ekki reykingar í herbergjunum.
Hvernig kemst ég að því hvort gististaðurinn leyfi gæludýr?
Gæludýrareglur er ávallt að finna á síðu gististaðarins undir „Húsreglur“.
Aukaaðstaða
Hvernig veit ég hvort það sé bílastæði á gististaðnum og hvernig get ég tekið það frá?
Undir „Aðstaða“ getur þú séð hvort gististaðurinn er með bílastæði eða ekki áður en þú bókar. Ef gististaðurinn fer fram á að þú pantir bílastæðið skaltu hafa beint samband við gististaðinn með því að nota tengiliðsupplýsingarnar sem voru gefnar upp í bókunarstaðfestingunni.
Hvernig get ég komist að því hvort gististaðurinn bjóði upp á skutluþjónustu og hvernig get ég bókað hana?
Ef gististaðurinn býður upp á skutluþjónustu er það skráð undir „Aðstaða“. Eftir að þú bókar getur þú rætt tilhögun flugvallarakstursins beint við gististaðinn. Upplýsingar um hvernig hægt er að hafa samband við gististaðinn er að finna í bókunarstaðfestingunni. Mundu að þú þarft að hafa flugupplýsingarnar þínar við höndina því þær eru nauðsynlegar til þess að bílstjórinn geti fundið þig á flugvellinum.
Getur gististaðurinn geymt farangurinn minn fyrir innritun eða eftir útritun?
Ef gististaðurinn er með farangursgeymslu er það sýnt á síðu gististaðarins undir „Aðstaða“. Til að fá meiri upplýsingar um geymslu á farangri skaltu hafa samband beint við gististaðinn með því að nota tengiliðsupplýsingarnar sem voru gefnar upp í bókunarstaðfestingunni.
Hvernig kemst ég að því hvort gististaðurinn sé með ákveðinn aðbúnað (t.d. lyftu)?
Undir „Aðstaða“ á síðu gististaðarins getur þú séð lista yfir allan aðbúnað gististaðarins, afþreyingu og þjónustu.
Texti í samtalsglugga byrjar
Staðfestar umsagnir frá raunverulegum gestum.
Við eigum yfir 70 milljón umsagnir um gististaði og þær eru allar frá staðfestum, raunverulegum gestum.
Hvernig virkar þetta?
1
Þetta byrjar með bókun
Þetta byrjar með bókun
Eina leiðin til að fá að gefa einkunn og umsögn er að bóka fyrst. Þannig vitum við að umsagnirnar okkar koma frá raunverulegum gestum sem hafa dvalið á gististaðnum.
2
Svo kemur ferðalagið
Svo kemur ferðalagið
Þegar gestir okkar dvelja á gististaðnum athuga þeir hve hljóðlátt herbergið er, hve vinalegt starfsfólkið er og fleira.
3
Og að lokum, umsögn
Og að lokum, umsögn
Að ferðalagi loknu segja gestirnir okkar frá dvölinni. Við athugum hverja einustu umsögn, fjarlægjum dónaskap og bætum þeim síðan á síðuna okkar.
Ef þú bókaðir gistingu í gegnum okkur og vilt gefa umsögn þarftu að skrá þig inn fyrst.